Handbolti

Kiel vill fá Aron

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Pálmarsson, leikmaður FH.
Aron Pálmarsson, leikmaður FH. Mynd/Valli
Þýskalandsmeistarar Kiel hafa mikinn áhuga á að fá Aron Pálmarsson, leikmann FH, til félagsins.

Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld en samkvæmt heimildum fréttastofunnar mun Aron hitta fulltrúa félagsins á mánudaginn kemur.

Aron hefur átt góðu gengi að fagna með FH á tímabilinu en hann er nú staddur í Þýskalandi með íslenska landsliðinu sem mætir Þjóðverjum í tveimur æfingaleikjum um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×