Handbolti

Ólafur: Erfitt að kyngja þessu tapi

Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar
Ólafur Stefánsson í leiknum í morgun
Ólafur Stefánsson í leiknum í morgun Mynd/Vilhelm
„Allur leikurinn var eitt tækifæri. Við gerðum okkur erfitt fyrir með því að klikka mikið í sókninni. Það gekk ágætlega að opna vörnina en skotin fóru ekki inn," sagði landsliðsfyrirliðinn Ólafur Stefánsson sem fann sig vel í upphafi leiks í gær en síðan fjaraði undan hans leik. Hann skoraði aðeins eitt mark í leiknum og það rétt fyrir leikslok.

„Það var erfitt að spila gegn þessari vörn. Við vissum það og undirbjuggum okkur mjög vel. Vörnin var flott og við gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum að gera þar," sagði Ólafur og segir að þó svo erfitt sé að kyngja tapinu sé ekkert óveðursský á himni.

„Vissulega er mjög erfitt að kyngja þessu tapi enda vorum við á fínu skriði. Það eru samt engin vond merki í þessum leik. Vörnin heldur, markvarslan fín sem og sóknin enda erum við að skapa okkur færi. Nú verður að hlaða batteríin og mæta brjálaðir í næsta leik."




Tengdar fréttir

Grátlegt tap fyrir Suður-Kóreu

Eins og óttast var átti íslenska liðið í vandræðum með lið Suður-Kóreu eins og önnur lið á Ólympíuleikunum í Peking. S-Kórea vann, 22-21.

Snorri Steinn: Verðum að nýta færin

„Við fengum frábært færi undir lokin en það atvik endurspeglaði kannski leikinn í heild sinni. Ég veit ekki hvað við klúðruðum mörgum dauðafærum í þessum leik,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson hundsvekktur eftir tapið grátlega gegn Kóreu í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×