Handbolti

Ásgeir Örn skoraði sjö í tapi GOG

Einn leikur var á dagskrá í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Skjern lagði GOG 29-26 og var þetta í fyrsta skipti í þrjú ár sem Skjærn vinnur sigur í á GOG.

Þetta var þriðja tal GOG í sex leikjum í deildinni en Ásgeir Örn Hallgrímsson var markahæstur hjá liðinu í dag með sjö mörk. Liðið er í 6. sæti deildarinnar en Skjern í öðru sætinu ásamt Silkeborg.

GOG lék sem fyrr án Snorra Steins Guðjónssonar sem er meiddur, en liðið endurheimti reyndar Kasper Nielsen úr meiðslum í leiknum.

Fyrrum landsliðsmaðurinn Kristian Gjessing var markahæstur hjá heimamönnum í kvöld með sex mörk, en hann var þarna að spila sinn 250. leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×