Enski boltinn

Wenger útilokar tilboð í Barry

NordcPhotos/GettyImages

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir ekki koma til greina að félagið geri tilboð í miðjumanninn Gareth Barry eins og haldið hefur verið fram í enskum fjölmiðlum.

"Ég veit ekki hvort Barry fer frá Aston Villa eða ekki, en ég er að minnsta kosti ekki að angra hann. Barry er fínn leikmaður og ég hef augastað á tveimur eða þremur leikmönnum, en það er best að nefna ekki nöfn. Það er betra að leyfa blaðamönnum að geta sér til um það. Ég mun segja ykkur frá því ef við kaupum leikmann, en við erum ekki að kaupa leikmann í augnablikinu," sagði Wenger við blaðamenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×