Körfubolti

Sáu ekki til sólar gegn Svíum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ágúst Björgvinsson er þjálfari íslenska liðsins í körfuknattleik. Fréttablaðið/ÓÓJ
Ágúst Björgvinsson er þjálfari íslenska liðsins í körfuknattleik. Fréttablaðið/ÓÓJ

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði 47-81 fyrir Svíþjóð í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu í Danmörku. Sænska liðið leiddi frá byrjun og hafði sextán stiga forystu eftir fyrsta leikhluta.

Helena Sverrisdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 17 stig, Hildur Sigurðardóttir og Signý Hermannsdóttir voru með sex stig.

Ísland leikur fjóra leiki í röð, gegn Noregi á fimmtudag, Finnum á föstudag og loks gegn Dönum á laugardag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×