Aragones vill taka Ítali til fyrirmyndar 25. mars 2008 16:33 Gattuso tekur við HM styttunni árið 2006 AFP
Luis Aragones, landsliðsþjálfari Spánverja, segir að spænsku landsliðsmennirnir ættu að taka sér ítalska landsliðið til fyrirmyndar á knattspyrnuvellinum. Spænska landsliðið hefur verið skipað sannkölluðum úrvalsleikmönnum undanfarin ár, en hefur orð á sér fyrir að missa niður um sig buxurnar á stórmótum. Aragones segist vilja breyta þessu og horfir til granna þeirra á Ítalíu sem dæmi um lið sem þjappar sér saman og nær árangri. "Það hafa komið mót þar sem við hefðum átt að komast lengra en við gerðum, en náðum ekki takmörkum okkar. Fyrir stuttu las ég viðtal við leikmann sem sagði að spænska landsliði skorti keppnisskap og það hef ég verið að segja lengi," sagði Aragones á blaðamannafundi í dag, en þjóðirnar leika vináttulandsleik annað kvöld "Ítalska liðið er skipað sterkum og hæfileikaríkum leimönnum, sem eru líka miklir keppnismenn," sagði Aragones. Hann sagði leikmenn á borð við Gennaro Gattuso vera lifandi dæmi um þetta. "Gattuso er frábær leikmaður sem alltaf skilar sínu. Hann og nokkrir aðrir í þessu ítalska liði geta kennt okkur mikið um það hvernig á að fórna sjálfum sér fyrir liðið," sagði Aragones. Spánverjar hafa aðeins einu sinni unnið sigur á stórmóti í knattspyrnu, en það var árið 1964 þegar liðið varð Evrópumeistari eftir 2-1 sigur á Rússum í úrslitaleik í Madrid.
Spænski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira