Fótbolti

Hearts hefur áhuga á Ingólfi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður Hearts.
Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður Hearts. Nordic Photos / AFP
Skoska úrvalsdeildarfélagið Hearts hefur fylgst náið hinum fimmtán ára gamla Ingólfi Sigurðssyni, leikmanni KR.

Að sögn Ólafs Garðarssonar umboðsmanns hefur Ingólfur hug á að fara aftur til erlends félags á næsta ári en hann lék í fyrra með Heerenveen í Hollandi.

Þó nokkur félög hafa áhuga á Ingólfi, svo sem Reading og Álasund í Noregi.

Það var Ólafur sem benti forráðamönnum Hearts á Ingólf en hann er umboðsmaður Eggerts Gunnþórs Jónssonar, leikmanni Hearts.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×