Enski boltinn

Robinho ánægður að lenda hjá City

NordicPhotos/GettyImages

Brasilíski leikmaðurinn Robinho segist himinlifandi yfir því að vera kominn til Manchester City frá Real Madrid á Spáni.

Hinn 24 ára gamli hæfileikamaður var keyptur á metfé á síðustu stundu fyrir lokun félagaskiptagluggans og hann hlakkar mikið til að sýna sig og sanna í Manchester.

"Ég er mjög ánægður að vera kominn hingað. Ég vonast til að geta spilað minn besta fótbolta og vekja gleði í hjörtum stuðningsmanna. Ég vil líka þakka stjóranum og bæði Thaksin Shinawatra og Abu Dhabi-félaginu fyrir viðleitni sína til að landa mér hingað," sagði Brasilíumaðurinn í samtali við Sky.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×