Handbolti

Guðmundur velur hópinn fyrir Þýskalandsleikina

Guðmundur Guðmundsson hefur valið 16 manna hóp sinn fyrir æfingaleikina tvo við Þjóðverja sem fram fara í Þýskalandi um næstu helgi.

Hópurinn verður í Þýskalandi dagana 25.-30. nóvember og leikið verður í Dormagen. Sem fyrr vantar nokkra sterka leikmenn í hópinn og þar má m.a. nefna að þeir Alexander Petersson, Sigfús Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson eru meiddir.

Markverðir:

Björgvin Gústavsson, Bittenfeld

Hreiðar Leví Guðmundsson, Sävehof

Aðrir leikmenn:

Aron Pálmarsson, FH

Bjarni Fritzon, St.Rapahel

Einar Hólmgeirsson, Grosswallstadt

Guðjón Valur Sigurðsson, RN-Löwen

Ingimundur Ingimundarson, Minden

Logi Geirsson, Lemgo

Ragnar Óskarsson, Dunkerque

Róbert Gunnarsson, Gummersbach

Rúnar Kárason, Fram

Sigurbergur Sveinsson, Haukar

Sturla Ásgeirsson, Düsseldorf

Sverre Jakobsson, HK

Vignir Svavarsson, Lemgo

Þórir Ólafsson, Lübbecke








Fleiri fréttir

Sjá meira


×