Enski boltinn

Gerrard ætti að ná leiknum við United

NordicPhotos/GettyImages

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segist vongóður um að fyrirliðinn Steven Gerrard verði búinn að ná sér af nárameiðslum sínum þegar liðið mætir erkifjendum sínum í Manchester United þann 13. september.

Gerrard er á batavegi eftir uppskurð á nára og er farinn að stunda léttar æfingar, en hann er ekki í landsliðshópi Englendinga fyrir leikina gegn Andorra og Króatíu á næstu dögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×