Handbolti

Ólafur með sex fyrir Ciudad Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur skoraði sex mörk fyrir Ciudad Real í dag.
Ólafur skoraði sex mörk fyrir Ciudad Real í dag. Mynd/Vilhelm
Ólafur Stefánsson skoraði sex mörk fyrir Ciudad Real sem vann tíu marka sigur á Alcobendas á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Staðan í hálfleik var 15-14, Alcobendas í vil, en Ólafur og félagar tóku til sinna ráða í síðari hálfleik og unnu öruggan sigur.

Ciudad er nú í þriðja sæti deildarinnar með tólf stig eins og þrjú önnur lið en Reale Ademar er á toppi deildarinnar með fimmtán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×