Handbolti

Ólafur markahæstur í stórsigri Ciudad Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur í leik með Ciudad Real.
Ólafur í leik með Ciudad Real. Mynd/Vilhelm

Ólafur Stefánsson skoraði níu mörk fyrir Ciudad Real sem vann þrettán marka sigur á Teucro í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær.

Ólafur skoraði tvö markanna úr vítum en hann var markahæstur leikmanna liðsins. Staðan í hálfleik var 19-11, Ciudad Real í vil.

Þetta var fyrsti leikur Ólafs og félaga á tímabilinu sem byrjar því á ágætum nótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×