Erlent

Breskir trukkastjórar loka vegum

Óli Tynes skrifar
Það var trukkur við trukk á A40 í dag.
Það var trukkur við trukk á A40 í dag.

Breskir vörubílstjórar gripu til aðgerða í dag til þess að mótmæla háu eldsneytisverði.

Til viðbótar við hækkanir vegna heimsmarkaðsverðs ætlar ríkisstjórnin að leggja aukaskatt á díseleldsneyti.

Það finnst vörubílstjórum alveg fráleitt og á meðfylgjandi mynd hafa þeir lokað hluta af A40 veginum til þess að leggja áherslu á mótmæli sín.

Bílstjórarnir vilja að Gordon Brown forsætisráðherra lækki skatta á eldsneyti til flutningafyrirtækja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×