Golf

Immelman sá fyrsti síðan Player

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zach Johnson klæðir Trevor Immelman í græna jakkann.
Zach Johnson klæðir Trevor Immelman í græna jakkann. Nordic Photos / Getty Images

Trevor Immelman varð í gær fyrsti Suður-Afríkumaðurinn til að sigra á bandaríska meistaramótinu í golfi síðan að Gary Player fagnaði sigri á mótinu árið 1978, fyrir 30 árum síðan.

Þetta var einnig fyrsti sigur Immelman á stórmóti en í desember á síðasta ári gekkst hann undir aðgerð þar sem góðkynja æxli var fjarlægt úr honum. Hann missti af fyrstu átta vikum keppnistímabilsins vegna þessa og reiknuðu ekki margir með að hann ynni til afreka um helgina.

Í upphafi mánaðarins komst hann ekki í gegnum niðurskurðinn á PGA-móti í Houston og besti árangur hans fyrir helgina síðan að aðgerðin fór fram var 40. sæti.

Immelman sagði að þetta hafi verið afar viðburðarríkur tími en Player gerði sitt til að stappa stálið í honum.

„Hann sagði mér að hann hefði trú á mér og að ég þyrfti að hafa trú á mér sjálfum. Ég fékk gæsahúð," sagði Immelman. Hann kláraði mótið með þriggja högga forystu á næsta mann, Tiger Woods.

Immelman gerðist atvinnukylfingur 20 ára gamall árið 1999 en hann er 28 ára gamall í dag. Hann hóf keppni á Evrópumótaröðinni árið 2001 og PGA-mótaröðinni árið 2006 en hann var í kjölfarið kjörinn nýliði ársins.

Hann kom hingað til Íslands árið 2004 og keppti á Canon-móti Nýherja á Hvaleyrarvelli. Hann bar sigur úr býtum við erfiðar aðstæður en hann lék á 72 höggum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×