Fótbolti

Dökkt útlit hjá Sundsvall

Hannes Þ. Sigurðsson og félagar eru í vondum málum
Hannes Þ. Sigurðsson og félagar eru í vondum málum

Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Halmstad og Sundsvall gerðu 0-0 jafntefli og Örebro lagði GAIS 1-0.

Hannes Þ. Sigurðsson og Ari Freyr Skúlason voru í byrjunarliði Sundsvall í kvöld en Ari var reyndar tekinn af velli eftir 67 mínútur. Liðið er komið í ansi vond mál í botnbaráttunni og situr í næstneðsta sæti með 19 stig - fimm stigum á eftir liðunum fyrir ofan þegar þrjár umferðir eru eftir.

Eyjólfur Héðinsson var í byrjunarliði GAIS í tapinu gegn Örebro í kvöld en var tekinn af velli á 66. mínútu. GAIS og Örebro eru í 9. og 10. sæti deildarinnar og sigla lygnan sjó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×