Handbolti

Garcia öflugur í sigri Göppingen

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jaliesky Garcia í leik með íslenska landsliðinu.
Jaliesky Garcia í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Vilhelm

Jaliesky Garcia skoraði sjö mörk fyrir Göppingen sem kom sér upp í fimmta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með sigri á Dormagen, 30-21.

Þá skoraði Einar Hólmgeirsson tvö mörk fyrir Grosswallstadt sem tapaði fyrir Flensburg á útivelli, 31-28. Alexander Petersson gat sem fyrr ekki leikið með Flensburg vegna meiðsla.

Flensburg er í öðru sæti deildarinnar með sautján stig eftir tíu leiki, rétt eins og Lemgo og Nordhorn. Göppingen kemur svo næst með fimmtán stig en Kiel er á toppnum með nítján stig. Kiel hefur ekki tapað stigi síðan liðið gerði óvænt jafntefli við Dormagen í fyrstu umferðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×