Enski boltinn

Adebayor ætlar ekki að fara frá Arsenal

AFP

Framherjinn Emmanuel Adebayor hefur nú tekið af allan vafa með framtíð sína hjá Arsenal ef marka má ummæli hans í viðtali á heimasíðu félagsins í dag.

Adebayor hefur verið orðaður við Barcelona og AC Milan í sumar, en hann segist vera tilbúinn að binda sig hjá Lundúnafélaginu.

"Mér líður mjög vel hjá Arsenal og hef aldrei sagt að mig langaði að fara. Mig langar að skrifa undir nýjan samning við Arsenal, því félagið á hug minn allan. Ég á þrjú ár eftir af samningi mínum og ég vil gjarnan framlengja hann. Það er gaman að vera hluti af fjölskyldunni sem Arsenal er," sagði hinn ungi Tógómaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×