Ísland eitt á toppi B-riðils Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. ágúst 2008 15:22 Ingimundur Ingimundarson tekur hér á Michael Kraus sem skoraði þrettán mörk í leiknum. Nordic Photos / AFP
Íslenska landsliðið í handbolta er nú eitt á toppi B-riðils í keppni í handbolta á Ólympíuleikunum í Peking eftir glæsilegan sigur á Þjóðverjum í dag. Ísland vann fjögurra marka sigur á Þýskalandi í dag, 33-29, og Rússa í fyrsta leiknum með tveimur mörkum, 33-31. Ísland er því með sex mörk í plús í markatölu og eina liðið sem er enn með fullt hús stiga. Þýskaland, Rússland og Suður-Kórea koma næst í þessari röð og er því Ísland búið að vinna liðin í öðru og þriðja sæti riðilsins. Danmörk og Egyptaland reka svo lestina með eitt stig hvort en þessi lið skildu jöfn á fyrsta keppnisdegi. Fyrr í dag vann Rússland sigur á Egyptalandi og Suður-Kórea vann Danmörk. Næsti leikur íslenska liðsins er á fimmtudagsmorgun klukkan 6.00 og er andstæðingurinn þá Suður-Kórea sem hefur komið mjög á óvart á mótinu til þessa. Í fyrsta leik voru þeir lengi vel inn í leiknum gegn Þjóðverjum og höfðu til að mynda þriggja marka forystu í hálfleik. Að lokum fögnuðu Þjóðverjar fjögurra marka sigri. Í dag lögðu þeir svo Evrópumeistarana frá Danmörku, 31-30. Í A-riðli eru Frakkland og Króatía bæði með fullt hús stiga, rétt eins og Ísland. Pólland og Spánn eru með tvö stig - Brasilía og Kína ekkert.
Handbolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira