Handbolti

Arnór: Kóreumenn frábærir

Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar
Arnór Atlason.
Arnór Atlason. Mynd/Vilhelm
„Þetta var ótrúlega ljúft enda ekki á hverjum degi sem við vinnum heimsmeistarana. Við getum aðeins slakað á eftir svona sigur en svo er að undirbúa okkur fyrir Kóreubúana sem eru rosalega góðir. Ég er ekki viss um að fólk átti sig á því hvernig handbolti það er sem þetta lið spilar. Þeir eru frábærir," sagði Arnór Atlason hress en á undan leik Þýskalands og Íslands fór fram viðureign Suður-Kóreu og Dana þar sem Kórea gerði sér lítið fyrir og vann Evrópumeistarana. Þeir verða klárlega erfiðir viðureignar.

„Ef við höldum áfram að spila þessa vörn og markvörslu á réttum tímum þá treysti ég okkur til að vinna hvaða lið sem er í þessu móti. Við erum hrikalega þéttir í vörninni og vinnslan frábær. Það er gaman að sjá árangur erfiðisins eftir miklar æfingar í sumar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×