Fótbolti

Beckham fer til Milan í janúar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Beckham klæðist búningi AC Milan eftir áramót.
David Beckham klæðist búningi AC Milan eftir áramót. Nordic Photos / Getty Images
AC Milan hefur staðfest að David Beckham gangi til liðs við félagið á lánssamningi í janúar næstkomandi.

Fulltrúar Beckham áttu í samningaviðræðum við Milan í dag og tók ekki langan tíma að komast að niðurstöðu.

Beckham á að baki 108 leiki með enska landsliðinu og ætlar sér að halda landsliðssætinu. Beckham er á mála hjá bandaríska MLS-liðinu LA Galaxy en deildin er í fríi yfir vetrarmánuðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×