Handbolti

Vignir leikmaður ársins

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/Heimasíða Skjern

Landsliðsmaðurinn Vignir Svavarsson hefur verið valinn leikmaður ársins hjá danska liðinu Skjern. Þetta var tilkynnt eftir að Skjern vann Kolding 32-27 í síðasta leik sínum á tímabilinu.

Vignir skoraði sex mörk í þessum kveðjuleik sínum fyrir Skjern en hann er á leið til liðs við Lemgo í Þýskalandi eftir þriggja ára veru með danska liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×