Íslenski boltinn

Átti Stefán spjöldin skilið? (myndband)

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Stefán Þórðarson fékk tvívegis að líta gula spjaldið í leik Keflavíkur og ÍA í gær og þar með það rauða, Skagamönnum til mikillar gremju.

Guðjón Þórðarson sakaði Ólaf Ragnarsson, dómara leiksins, um að beita Stefán ofbeldi með því að gefa honum rauða spjaldið. Lesendur Vísis geta nú lagt sjálfir dóm á atvikin með því að smella á hlekkinn hér að ofan.

Stefán fékk fyrst áminningu strax á sjöttu mínútu leiksins og svo aftur sjö mínútum fyrir leikslok og þar með rautt spjald. Missir hann af næsta leik ÍA vegna þessa.


Tengdar fréttir

Stefán Þór: Ég fór í boltann

Stefán Þór Þórðarson segir engan vafa leika á því að hann hafi farið í boltann þegar hann fékk síðara gula spjaldið sitt í leik ÍA og Keflavíkur í gær.

Guðjón stendur við ummæli sín

Guðjón Þórðarson sagði í samtali við Vísi að hann standi heilshugar við þau ummæli sem hann lét falla eftir leik Keflavíkur og ÍA í gær.

Ólafur: Guðjón er að bulla

Ólafur Ragnarsson dómari segir ekkert hæft í ásökunum Guðjóns Þórðarsonar í sinn garð né heldur annarra dómara.

Guðjón: Þeirra er skömmin (myndband)

Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, var ómyrkur í máli gagnvart Ólafi Ragnarssyni dómara og forystumönnum KSÍ í viðtali við Stöð 2 Sport í gær.

Þórir: Málið í aganefnd

Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, mun skjóta ummælum Guðjóns Þórðarsonar til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×