Kompás í Kambódíu 26. maí 2008 14:23
Um helmingur kambódísku þjóðarinnar eru undir 25 ára aldri. Um 50.000 börn eru án menntunar sem jafngildir fjölda allra grunnskólabarna á Íslandi. Kambódía á sér mikla en átakanlega sögu. Þriggja áratuga stíð setti mark sitt á þjóðina en friður komst á í landinu fyrir níu árum. Afleiðingar stríðsátakanna eru gífulegar. Rauðu Khmerarnir brutu niður innviði samfélagsins og reyndu að útrýma kennurum, læknum og menntafólki. Stór hluti þessarra þjóðfélagsþegna voru fangelsaðir í S-21 öryggisfangelsinu þar sem fangar voru yfirheyrðir, pyntaðir og teknir af lífi. Barnaheill á Íslandi hefur stutt verkefni Barnaheilla í Kambódíu í tæp þrjú ár í náinni samvinnu við Barnaheill í Noregi sem stjórnar verkefninu. Markmið samtakanna er að byggja upp skólastarf í sveitahéruðum þar sem heilu kynslóðirnar hafa farið á mis við menntun vegna átaka í landinu. Brynja Dögg Friðriksdóttir fréttmaður og Jakob Halldórsson tökumaður í Kompási, eru nýkomin frá Kambódíu þar sem þau kynntu sér uppbyggingastarf Barnaheilla í héraðinu Kampong Cham. ,,Þetta var einstök upplifun. Við heimsóttum meðal annars þorpið Veal Bompong sem er mjög afskekkt þorp í Kambódíu. Skærur voru í héraðinu allt fram til ársins 1999. Það hafa aldrei ferðamenn komið í þorpið og margir íbúanna hafa aldrei séð hvítt fólk áður. Fæstir hinna fullorðnu eru læsir og hreint vatn er af skornum skammti," segir Brynja Dögg. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í landinu og ljóst er að miklar breytingar munu verða á efnahag landsins á næstu árum. ,,Þetta er stórkostlegt land með mikla menningararfleið. Þjóðarstolt Kambódíumanna, Angkor Wat hofið, ættu flestir að þekkja en landið hefur upp á svo miklu meira að bjóða," segir Jakob. Sýnt verður frá ferðinni í síðasta Kompásþætti vetrarins annað kvöld kl:21:50 á Stöð 2. BDFÞessi hópur fylgdist áhugasamur með þegar starfsmenn Barnaheilla komu til Meak skóla í Kampong Cham sýslu.BDFÖll skólabörn klæðast skólabúningum.BDFÞessar ungu stúlkur seldu snakk nálægt Chor Norm skólanum.BDFEinbeitingin leynir sér ekki hjá þessum unga strák.BDFÞað er ekki á hverjum degi sem gesti ber að garði í Veal Bompong. Margir þorpsbúar klæddu sig upp af tilefninu.BDFYfirmunkurinn í Veal Bompong var afar þakklátur Barnaheillum á Íslandi fyrir að byggja skóla í þorpinu. Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, og Sakem Kong, aðstoðarverkefnisstjóri menntaverkefnisins, votta munkinum virðingu sína.BDF239 börn eru í skólanum í veal Bompong. Þrír kennarar sjá um kennsluna.BDFBDFKambódíumenn eru flestir búddatrúar.BDFKambódíumenn eru úrræðagóður og leiknir að flytja mikinn varning á reiðhjólum og vespum.BDFÁ rússneska markaðinum í Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu er líf og fjör.BDFBDFSéð yfir Tonle Sap ánna í Phnom PenhBDFÞessi unga kona býr í fátækrahverfi í Phnom Penh. Hún á brátt von á sínu öðru barni en fyrra barn hennar dó. Hún nýtur stuðning móður sinnar en barnsfaðir hennar yfirgaf hana.BDFBDFBDFNautgripir ganga víða lausir í sveitum Kambódíu. Þessir voru á skólalóð Meak skóla.BDFVegir eru misgóðir í Kambódíu.BDFBDFBúddanunna.BDFBDFKennarar, læknar og menntafólk var fangelsað í S-21 öryggisfangelsinu þar sem það var yfirheyrt, pyntað og tekið af lífi. Aðeins örfáir einstaklingar komust lífs af eftir dvöl þar.BDFTeknar voru myndir af öllum föngum í S-21 fangelsinu.BDFRauðu Khmerarnir grófu tæplega 9000 manns í fjöldagröf í Cheoung Ek, öðru nafni Killing fields. Nú stendur þar minnisvarði um fórnarlömb Rauðu Khmeranna. Alls hafa fundist 19.440 fjöldagrafir í Kambódíu.BDF
Mest lesið Streitulaus heimferð Egils frá Grikklandi breyttist í martröð Lífið Stjörnulífið: „Ég er ekkert eðlilega skotin í þessum gæja“ Lífið Að drekka áfengi eins og að panta sér vanlíðan á Amazon Lífið Leifur og Hugrún orðin foreldrar Lífið Tanja Ýr á von á barni með breskum hermanni Lífið „Þetta var augljóslega slys“ Lífið „Hann var of klár fyrir lífið“ Lífið Ritstjóra DV dæmdur ósigur eftir símhringingu Lífið „Í dag eru sex ár frá því ég giftist þessum gæja í Verona“ Lífið Fagna afmæli prinsins með nýrri ljósmynd Lífið Fleiri fréttir „Þetta var augljóslega slys“ Streitulaus heimferð Egils frá Grikklandi breyttist í martröð Leifur og Hugrún orðin foreldrar Fagna afmæli prinsins með nýrri ljósmynd Drengur Ara og Dórótheu kominn með nafn Tanja Ýr á von á barni með breskum hermanni Ritstjóra DV dæmdur ósigur eftir símhringingu „Í dag eru sex ár frá því ég giftist þessum gæja í Verona“ Eyddi tíu milljónum í tískuvörur fyrir kærustuna Stjörnulífið: „Ég er ekkert eðlilega skotin í þessum gæja“ Að drekka áfengi eins og að panta sér vanlíðan á Amazon Nathaniel Clyne á Hax og Auto Örkumlaðist eftir slys en heldur fast í drauminn „Ég grét svo mikið“ Gleði og sorg í bland á síðasta LungA „Hann var of klár fyrir lífið“ „Ég var rétta konan á réttum tíma“ Eastwood kveður kærustu sína Christina Sandera „Sigga getur ekki lengur haldið því leyndu að hún er ólétt“ Bónorðið eins og atriði úr rómantískri kvikmynd Fékk sér þýðingarmikið húðflúr Fengu veður af eldingum og þurftu að slaufa tónleikunum Sögulegt og sjarmerandi einbýlishús í 101 Hugarástand snýr aftur Við það að landa Theron og Balta Helvítis kokkurinn: Butterfly kjúklingur og Helvítis grillsósan Ekki saman á brúðkaupsafmælinu Kaleo fangar hræðilegan veruleika Lítur upp til Elle Woods og Pamelu Anderson Bob Newhart látinn Sjá meira