Lífið

„Sigga getur ekki lengur haldið því leyndu að hún er ó­létt“

Máni Snær Þorláksson skrifar
Fjölskyldan saman í langþráðu fríi á dögunum.
Fjölskyldan saman í langþráðu fríi á dögunum. Skjáskot/Jón Viðar

Bardagakappinn Jón Viðar Arnþórsson og Sigríður Jóna Rafnsdóttir, hjúkrunarfræðingur eiga von á sínu öðru barni saman í september. Fyrir á Jón Viðar einn dreng.

„Langþráð fjölskyldufrí eftir hvert kvikmyndaverkefnið á fætur öðru og Sigga getur ekki lengur haldið því leyndu að hún er ólétt,“ skrifar Jón Viðar á Facebook og birtir skemmtilega myndsyrpu af fjölskyldunni sem er statt í fríi erlendis á dögunum.

Jón Viðar er einn af stofnendum og eigendum ISR Matrix Iceland og Mjölnis. Hann starfar í dag við það að þjálfa fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga í neyðarvörn og öryggistökum auk þess sem ég sér um slagsmálaatriði og áhættuatriði í íslenskum kvikmyndum og þáttum.

Þá vakti Jón Viðar mikla athygli í skemmtiþáttunum Allir geta dansað á Stöð 2 í lok árs 2019 fyrir frábæran árangur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×