Erlent

Rússar skutu niður könnunarvél

MiG-29 orrustuþota.
MiG-29 orrustuþota.

Það var rússnesk orrustuþota sem skaut niður ómannaða könnunarflugvél frá Georgíu yfir Abkasíu hinn 20 apríl síðastliðinn.

Eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna í landinu segir að ratsjárupptökur sýni að eftir að hafa skotið könnunarvélina niður hafi þotan flogið inn í Rússland og horfið þar.

Abkasía og Suður-Ossetía eru sjálfstjórnarhéruð sem vill fá fullt sjálfstæði frá Georgíu.

Rússar styðja héruðin í því og hafa tekið upp lögformlegt samband við þau. Þeir hafa enn ekki gengið svo langt að viðurkenna sjálfstæði þeirra.

Rússar neituðu því á sínum tíma að hafa skotið könnunarvélina niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×