Íslenski boltinn

Stefán Þór: Ég fór í boltann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefán Þórðarson í leik með ÍA gegn Fram fyrri í vor.
Stefán Þórðarson í leik með ÍA gegn Fram fyrri í vor.

Stefán Þór Þórðarson segir engan vafa leika á því að hann hafi farið í boltann þegar hann fékk síðara gula spjaldið sitt í leik ÍA og Keflavíkur í gær.

Stefán fékk gult spjald strax á sjöttu mínútu leiksins og svo aftur gult á 83. mínútu leiksins og þar með rautt. Lesendur geta sjálfir dæmt um brotin með því að smella á fréttina hér að neðan en sjálfur segir Stefán að síðara spjaldið hafi ekki verið réttlætanlegt.

„Ég fór í boltann og spilaði honum til samherja míns," sagði Stefán í samtali við Vísi. Hann sagðist ekki hafa fengið aðvörðun fyrir seinna gula spjaldið og því hafi ekki um uppsafnað brot verið að ræða.

„Ég ætla annars ekki að ræða frekar um þetta og bendi á Guðjón Þórðarson þjálfara," sagði Stefán. Guðjón sagði að dómari leiksins hefði beitt Stefán ofbeldi með því að gefa honum rauða spjaldið og einnig að dómarar hefðu fundað fyrir leikinn um hvernig ætti að taka á Skagamönnum og þá sérstaklega Stefáni.

Ólafur Ragnarsson, dómari leiksins, sagðist í samtali við Vísi í dag standa heilshugar við bæði spjöldin sem hann gaf Stefáni.


Tengdar fréttir

Átti Stefán spjöldin skilið? (myndband)

Stefán Þórðarson fékk tvívegis að líta gula spjaldið í leik Keflavíkur og ÍA í gær og þar með það rauða, Skagamönnum til mikillar gremju.

Guðjón stendur við ummæli sín

Guðjón Þórðarson sagði í samtali við Vísi að hann standi heilshugar við þau ummæli sem hann lét falla eftir leik Keflavíkur og ÍA í gær.

Ólafur: Guðjón er að bulla

Ólafur Ragnarsson dómari segir ekkert hæft í ásökunum Guðjóns Þórðarsonar í sinn garð né heldur annarra dómara.

Guðjón: Þeirra er skömmin (myndband)

Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, var ómyrkur í máli gagnvart Ólafi Ragnarssyni dómara og forystumönnum KSÍ í viðtali við Stöð 2 Sport í gær.

Þórir: Málið í aganefnd

Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, mun skjóta ummælum Guðjóns Þórðarsonar til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×