Handbolti

Elverum vann í Tyrklandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurður Ari Stefánsson.
Sigurður Ari Stefánsson.
Noregsmeistarar Elverum eru í góðum málum fyrir seinni viðureign sína gegn tyrkneska liðinu Izmir eftir sigur í Tyrklandi í gær, 30-28.

Sigurður Ari Stefánsson skoraði eitt mark fyrir Elverum en síðari leikurinn fer fram í Noregi um næstu helgi.

Um er að ræða aðra umferð keppninnar en Fram vann í gær sigur á Omni Hellas í Hollandi, 32-23.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×