Handbolti

Guðmundur tekur við GOG

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson, til vinstri, er á leið í danska boltann.
Guðmundur Guðmundsson, til vinstri, er á leið í danska boltann.
Guðmundur Guðmundsson mun í dag skrifa undir þriggja ára samning við danska handknattleiksfélagið GOG Svendborg.

Guðmundur er nú á leið til Danmerkur en þetta verður tilkynnt á blaðamannafundi eftir leik GOG við Bjerringbro-Silkeborg í dag.

Hann mun einnig áfram sinna þjálfun íslenska landsliðsins samhliða starfinu hjá GOG.

Þýska úrvalsdeildarliðið Grosswallstadt gerði Guðmundi einnig tilboð um að taka við þjálfun liðsins en hann hafnaði því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×