Góður rómur var gerður að London Airwaves-hátíðinni sem haldin var um síðustu helgi. Þorsteinn Stephensen, eigandi Hr. Örlygs, segir að hátíðin verði haldin aftur á næsta ári og verið sé að skoða hvort Airwaves verði haldin í fleiri löndum í framtíðinni.
Alls voru átta skemmtistaðir í Shoreditch-hverfinu í London lagðir undir fyrstu London Airwaves-hátíðina um síðustu helgi. Fjöldi hljómsveita og plötusnúða kom fram, allt listamenn sem teljast ungir og upprennandi. Nokkrar hljómsveitanna á London Airwaves eru væntanlegar á Iceland Airwaves í næsta mánuði, til að mynda Familjen, Pnau og Young Knives. Íslensku hljómsveitirnar Steed Lord og FM Belfast komu fram og vöktu talsverða athygli. Fjöldi Íslendinga sótti hátíðina heim og lét vel í sér heyra þegar Íslendingarnir stigu á svið.
Allt púðrið í eina tunnu

Þorsteinn Stephensen, eigandi Hr. Örlygs, sá um framkvæmd hátíðarinnar ásamt fjölda Íslendinga. Þar á meðal voru Egill Tómasson, Sara María Eyþórsdóttir, Róbert Aron Magnússon og Bjarni Knútsson. Þorsteinn sagði í samtali við Fréttablaðið að hann væri nokkuð ánægður með hvernig hátíðin í London heppnaðist. „Ég hefði viljað sjá aðeins meiri sölu en annars er ég mjög ánægður. Við fengum mikla umfjöllun í fjölmiðlum og viðbrögðin voru alls staðar góð," segir hann. Um 2.300 gestir voru á hátíðinni auk rúmlega tvö hundruð blaðamanna. Þorsteinn er spurður hvort Hr. Örlygur hafi hagnast á hátíðinni í London. „Nei, en við vorum mjög nálægt núllinu. Við erum sjálfsagt að borga eitthvað með þessu. Við höfum áður haldið kynningartónleika fyrir Airwaves í Skandinavíu og í London og höfum verið að borga með þeim. Nú settum við bara allt púðrið í eina tunnu og það kemur svipað út. Þetta er bara markaðsátak og þau kosta alltaf sitt."
Aðspurður viðurkennir Þorsteinn að ýmsir byrjunarörðugleikar hafi komið upp við framkvæmd London Airwaves. Þeir hafi þó allir reynst smávægilegir. „Við sáum eiginlega bara hversu allt tæknifólk og „crew" er gott á Íslandi. Þarna vorum við að vinna í fyrsta skipti með fólki og það gekk misvel." Hann segir að það hafi verið rétt ákvörðun að láta hátíðina aðeins standa í eitt kvöld, öfugt við þau þrjú eða fjögur eins og tíðkast hér á landi.


hdm@frettabladid.is