Handbolti

GOG steinlá fyrir Nordsjælland

Ásgeir Örn Hallgrímsson fagnar marki með íslenska landsliðinu.
Ásgeir Örn Hallgrímsson fagnar marki með íslenska landsliðinu.

Gísli Kristjánsson og félagar í Nordsjælland unnu í gær góðan heimasigur á GOG, 31-23. Gísli skoraði eitt mark í leiknum.

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði tvö mörk fyrir GOG en Snorri Steinn Guðjónsson er enn frá vegna meiðsla.

GOG er nú í sjöunda sæti deildarinnar með níu stig eftir jafn marga leiki en Nordsjælland er í fimmta sæti með tíu stig. Bjerringbro-Silkeborg er á toppi deildarinnar með fjórtán stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×