Enski boltinn

Kanu framlengir við Portsmouth

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kanu fagnar sigurmarki sínu í ensku bikarkeppninni.
Kanu fagnar sigurmarki sínu í ensku bikarkeppninni. Nordic Photos / Getty Images

Nígeríski framherjinn Nwankwo Kanu hefur framlengt samning sinn við ensku bikarmeistarana í Portsmouth um eitt ár.

Samningur hans rann út nú í vor en hann komst að munnlegu samkomulagi við Portsmouth skömmu eftir að tímabilinu lauk í vor og hefur nú skrifað formlega undir nýja samninginn.

Kanu hafði reyndar verið orðaður við nokkur lið í Bandaríkjunum en hann sagði í samtali við heimasíðu Portsmouth að hann hefði ekkert frekar viljað gera en að spila áfram með Portsmouth, þar sem honum líður mjög vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×