Handbolti

Makedónía vann Eistland

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Makedóníu verjast hér andstæðingi sínum.
Leikmenn Makedóníu verjast hér andstæðingi sínum. Nordic Photos / AFP

Einn leikur fór fram í riðli Íslands í undankeppni EM 2010 í handbolta er Makedónía vann níu marka sigur á Eistlandi, 31-22. Staðan í hálfleik var 13-8, Makedónum í vil en þeir léku á heimavelli í kvöld.

Þetta var fyrsti leikur Makedóníu í riðlinum en sá þriðji hjá Eistlandi. Bæði lið eru með tvö stig en Eistar hafa þar að auki tapað fyrir Noregi en unnið Belgíu.

Næsti leikur Íslands er gegn Makedóníu um miðbik mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×