Handbolti

Naumur sigur Ciudad Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad Real.
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad Real. Mynd/Vilhelm

Ciudad Real er komið á topp spænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir nauman sigur á Granollers, 32-31, í gærkvöldi.

Ciudad Real og Barcelona eru bæði með 22 stig á toppi deildarinnar en síðarnefnda liðið á reyndar leik til góða.

Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Ciudad Real sem var fjórum mörkum undir í hálfleik, 14-10. Sigurmarkið var skorað á síðustu sekúndum leiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×