Viðskipti erlent

Gengi fasteignasjóðanna hrynur

Höfuðstöðvar Fannie Mae.
Höfuðstöðvar Fannie Mae. Mynd/AFP

Gengi bréfa í fasteignasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac hafa fallið um helming fyrir upphaf viðskiptadagsins í dag. Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vísaði því á bug í gær að sjóðirnir væru að keyra í þrot og benti á að þeir væru of mikilvægir fyrir bandarískt efnahagslíf til að svo geti farið.

Sjóðirnir njóta báðir stuðnings bandaríska ríkisins en bankar og aðrir fasteignalánveitendur vestanhafs leita til þeirra til eftir til útlána í fasteignaviðskiptum.

Þær raddir hafa orðið æ hávarari að sjóðirnir eigi í miklum erfiðleikum en bandaríska dagblaðið Wall Street Journal sagði í vikunni að ráðamenn hafi fundað um stöðuna fyrir nokkru. Hafi meðal annars komið til álita að bandaríski seðlabankinn grípi inn í og kaupi skuldabréf sjóðanna sem tengist bandarískum fasteignalánum.

Gengi Fannie Mae hefur nú fallið um 50 prósent í dag og stendur í 6,6 dölum á hlut. Það hefur ekki verið lægra síðan í nóvember árið 1990. Þá hefur gengi bréfa í Freddie Mac fallið um 42,5 prósent. Gengi sjóðsins stendur í 4,6 dölum á hlut og hefur ekki verið lægra síðan í byrjun árs 1991.

Gengi bréfa í Fannie Mae stóð í 37,4 dölum á hlut um áramótin. Freddie Mac stóð í 27,9 dölum á hlut á sama tíma. Langstærstur hluti fallsins skall á í vikunni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×