Enski boltinn

Keegan skrópar á æfingu þriðja daginn í röð

NordicPhotos/GettyImages

Framtíð Kevin Keegan hjá Newcastle er enn mjög óljós eftir að knattspyrnustjórinn mætti ekki á æfingu liðsins þriðja daginn í röð. Engin ný tíðindi hafa komið úr herbúðum liðsins enn sem komið er, en Sky fréttastofan segir að eigandi félagsins hafi flogið aftur til Englands úr viðskiptaferð til að finna lausn á málinu.

Keegan hefur aðeins setið í stjórastólnum í átta mánuði hjá Newcastle, en hann er talinn afar ósáttur við stefnu stjórnar félagsins í leikmannamálum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×