Enski boltinn

Saha orðaður við Sunderland

Elvar Geir Magnússon skrifar
Er Saha á förum?
Er Saha á förum?

Í enskum blöðum í morgun er sagt að Sunderland hafi komið með tilboð í Louis Saha, sóknarmann Manchester United.

Roy Keane, stjóri Sunderland, hyggst gera hann að launahæsta leikmanni í sögu Sunderland.

Saha var meðal áhorfenda þegar Sunderland tapaði 0-1 fyrir Ajax í æfingaleik.

Sunderland hefur þegar eytt 20 milljónum punda í leikmannakaup í sumar en vonast til að bæta við tveimur eða þremur áður en félagaskiptaglugganum verður lokað.

Saha hefur verið mikið á meiðslalistanum síðan hann kom til Manchester United frá Fulham. Óvíst er þó hvort Englandsmeistararnir vilji láta hann fara fyrr en þeir ná að krækja í annan sóknarmann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×