Enski boltinn

Kenwright: Ég er fátæklingur

Bill Kenwright er hér með David Moyes knattspyrnustjóra Everton
Bill Kenwright er hér með David Moyes knattspyrnustjóra Everton NordicPhotos/GettyImages

Bill Kenwright eigandi Everton segir að félagið verði að finna sér nýjan eiganda ef það ætli sér að keppa við milljarðamæringa á borð við þá sem keyptu Manchester City á dögunum.

"Ég er fátæklingur við hlið annara stjórnarformanna. Ég vil að Everton komi í eigu manns sem er milljarðamæringur, en það er ég ekki. Hlutur minn í félaginu hefur verið til sölu allar götur síðan ég keypti hann. Það þýðir ekkert fyrir mig að reyna að halda áfram, við verðum að finna nýjan eiganda," sagði Kenwright og bætti við að félagaskiptatímabilið sem lauk á dögunum hafi verið það erfiðasta síðan hann tók við.

"Það verður sífellt erfiðara að finna pening til að keppa við hin félögin og við getum einfaldlega ekki haldið áfram með þessum hætti," bætti Kenwright við í samtali við BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×