Handbolti

Ísland tapaði stórt fyrir Noregi

Mynd/Vilhelm

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði í kvöld 36-15 fyrir því norska á Möbelringen mótinu sem fram fer í Noregi.

Sigur norska liðsins var aldrei í hættu og hafði liðið yfir 18-5 í hálfleik. Ágústa Edda Björnsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með fjögur mörk.

Í hinum leiknum í dag gerðu Danir og Rússar 27-27 jafntefli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×