Handbolti

Eistar náðu jafntefli við Makedóna

Bjarte Myrhol skoraði 11 mörk fyrir Norðmenn í dag
Bjarte Myrhol skoraði 11 mörk fyrir Norðmenn í dag

Óvænt úrslit urðu í þriðja riðli undankeppni EM í handbolta í dag þegar Eistar náðu 28-28 jafntefli við Makedóna á heimavelli sínum.

Í þessum sama riðli unnu Norðmenn stórsigur á Belgum 35-24 eftir að hafa verið yfir 18-15 í hálfleik. Bjarte Myrhol skoraði 11 mörk fyrir Norðmenn í leiknum.

Staðan í riðlinum:

1. Noregur: 4 leikir, 7 stig

2. Ísland: 2 leikir, 3 stig

3. Makedónía: 2 leikir, 3 stig

4. Eistland: 3 leikir, 3 stig

5. Belgía: 4 leikir, 0 stig

Næstu leikir í keppninni eru ekki á dagskrá fyrr en í mars á næsta ári. Þann 18. mars fer íslenska liðið til Makedóníu og spilar svo við Eista hér heima nokkrum dögum síðar.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×