Handbolti

Aftur tryggði Þórir jafntefli

Þórir Ólafsson var aftur hetja íslenska liðsins í lokin
Þórir Ólafsson var aftur hetja íslenska liðsins í lokin

Þórir Ólafsson tryggði íslenska landsliðinu 33-33 jafntefli við Þjóðverja í dag þegar hann skoraði jöfnunarmark íslenska liðsins skömmu fyrir leikslok í æfingaleik liðanna í Oberhausen.

Þjóðverjar höfðu yfir 16-15 í hálfleik og voru skrefinu á undan lengst af í síðari hálfleik. Íslenska liðinu tókst að jafna leikinn í stöðunni 32-32 en þýska liðið komst einu marki yfir og var með boltann þegar skammt lifði leiks.

Þjóðverjarnir köstuðu hinsvegar boltanum klaufalega frá sér og Þórir Ólafsson brunaði fram og jafnaði metin fyrir íslenska liðið rétt eins og hann gerði gegn Norðmönnum á dögunum.

Talsverð forföll voru í báðum liðum og fengu því margir menn að reyna sig hjá báðum liðum. Þau mætast aftur klukkan 14 á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×