Handbolti

Íslendingaliðin leika til úrslita í Danmörku

Arnór Atlason og félagar eru komnir í úrslit
Arnór Atlason og félagar eru komnir í úrslit Mynd/Birkir Baldvinsson

Það verða FCK og GOG sem leika til úrslita um meistaratitilinn í handbolta í Danmörku. GOG vann í dag 37-36 sigur á Arhus á útivelli í dag þar sem Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 6 mörk og Ásgeir Örn Hallgrímsson 4.

Fyrr í dag vann svo FCK 39-37 sigur á Silkeborg í síðari leik liðanna þar sem Arnór Atlason var næstmarkahæstur í liði FCK með 6 mörk. Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli á heimavelli FCK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×