Handbolti

Ólafur: Vildi finna nýja áskorun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad Real.
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad Real. Mynd/Vilhelm

Ólafur Stefánsson gekk í gær frá þriggja ára samningi við danska C-deildarliðið AG Håndbold. Hann sagði í viðtali við Henry Birgi Gunnarsson í útvarpsþættinum Skjálfanda að hann vildi finna sér nýja áskorun.

„Ég er glaður að þetta sé komið í höfn og vonandi að þetta gangi allt saman eftir," sagði Ólafur sem hefur undanfarin ár leikið með Spánar- og Evrópumeisturum Ciudad Real.

„Hvatinn var ekki lengur fyrir hjá Ciudad Real. Ég ætlaði alltaf að gera eitthvað nýtt og jafnvel að koma heim. Ég skil við klúbbinn í góðu en ég vildi finna mér nýja áskorun."

Hægt er að hlusta á allt viðtalið hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×