Handbolti

Björgvin: Draumur að taka þátt

Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar
Björgvin Páll Gústavsson kom snemma inn á og stóð sig vel.
Björgvin Páll Gústavsson kom snemma inn á og stóð sig vel. Mynd/Vilhelm
Björgvin Páll Gústavsson átti fínan síðari hálfleik í íslenska markinu í gær. Varði mikilvæg skot á góðum tímum. Þetta var fyrsti leikur Björgvins á stórmóti og frammistaðan lofar góðu fyrir framhaldið.

„Ég skal verja núll bolta í hverjum leik ef við bara vinnum. Það er það eina sem skiptir máli. Ég fann mig vel í seinni hálfleik og komst aðeins í gírinn. Maður verður að byggja ofan á þetta."

„Það er frábært að vera hérna og maður verður að njóta hverrar sekúndu. Ég ætla að halda áfram að njóta mín hérna og gera mitt besta. Þetta er alger draumur að fá að taka þátt í þessu og vonandi er þetta bara byrjunin að einhverju góðu," sagði Björgvin Páll sem segist eiga mikið inni.

Menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og maður hennar Kristján Arason handboltakappi hvetja strákana áfram. Vilhelm Gunnarsson
Markverðirnir ráða ráðum sínum. Vilhelm Gunnarsson
Ólafur Stefánsson undrast á ákvörðun dómarans. Vilhelm Gunnarsson
Róbert Gunnarsson var öflugur á línunni. Vilhelm Gunnarsson
Rússar rétt fyrir leik. Vilhelm Gunnarsson
Snorri Steinn Guðjónsson fagnar einu af tólf mörkunum sem hann gerði í leiknum. Vilhelm Gunnarsson
Snorri Steinn í sókn. Vilhelm Gunnarsson
Einar Þorvarðarson fagnar með Snorra Steini. Vilhelm Gunnarsson
Ólafur Stefánsson undirbýr skot að marki.Nordic Photos / AFP
Sturla Ásgeirsson faðmar Ólaf að sér eftir leikinn.Nordic Photos / AFP
Alexander Petersson átti stórleik og fagnar hér einu af mörkunum sínum í leiknum.Nordic Photos / AFP
Arnór Atlason átti einnig gríðarlega góðan leik fyrir íslenska liðið og hér fagnar hann einu af sínum mörkum.Nordic Photos / AFP
Alexander tekur skot að marki.Nordic Photos / AFP
Markverðirnir Hreiðar Guðmundsson og Björgvin Páll Gústavsson fagna eftir leik.Nordic Photos / AFP
Ólafur Stefánsson var oft í strangri gæslu hjá rússnesku varnarmönnunum sem réðu reyndar illa við íslenska sóknarleikinn.Nordic Photos / AFP
Arnór átti margar góðar stoðsendingar í leiknum fyrir utan mörkin sem hann skoraði.Nordic Photos / AFP

Tengdar fréttir

Arnór: Eigum mikið inni

„Það er tilbreyting að vera ekki búinn að mála sig út í horn eftir fyrsta leik,“ sagði Arnór Atlason brosandi eftir leik. Arnór átti ágætan leik, mistækur á köflum en læt það ekki slá sig út af laginu, hélt áfram að vera grimmur og skilaði mjög góðum mörkum og þar á meðal markinu sem endanlega kláraði leikinn.

Ólafur: Vinnum ekki Rússa á hverjum degi

Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, segir að allir leikmenn hafi lagt sitt af mörkum í sigri Íslands á Rússlandi í nótt.

Róbert: Snorri átti stórleik

„Við gáfum rétta tóninn hér strax í fyrsta leik. Þetta var virkilega skemmtilegur leikur og allir voru að gefa sig hundrað prósent í verkefnið,“ sagði línumaðurinn Róbert Gunnarsson við Vísi eftir leik í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×