Enski boltinn

Ljungberg farinn frá West Ham

Elvar Geir Magnússon skrifar

West Ham United og Fredrik Ljungberg hafa komist að samkomulagi um að rifta samningi leikmannsins. Hann er því laus allra mála en talið er að Roma og Olympiakos hafi áhuga á honum ásamt fjölda annarra liða.

Ljungberg segist hafa notið ársins hjá West Ham en þessi ákvörðun hafi verið best fyrir alla aðila. Hann mun nú leggjast undir feld og íhuga sína framtíð í fótbolta.

Ljungberg var í byrjunarliði West Ham í 25 leikjum síðasta tímabil eftir að hafa verið keyptur á þrjár milljónir punda frá Arsenal í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×