Enski boltinn

Bolton snýr sér að Bullard

Elvar Geir Magnússon skrifar
Jimmy Bullard í leik með Fulham.
Jimmy Bullard í leik með Fulham.

Gary Megson, knattspyrnustjóri Bolton, ætlar að reyna að fá Jimmy Bullard frá Fulham. Hann hefur hinsvegar gefist upp á því að reyna að fá James Harper, miðjumann Reading.

Framtíð Bullard hjá Fulham er í óvissu en félagið hefur enn ekki hafið viðræður við hann um nýjan samning. Megson vill styrkja hóp sinn áður en félagaskiptaglugganum verður lokað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×