Handbolti

Róbert tryggði Íslandi sigur á Þjóðverjum

Róbert Gunnarsson tryggði sigurinn
Róbert Gunnarsson tryggði sigurinn AFP

Íslendingar og Þjóðverjar áttust annan daginn í röð við í æfingaleik í handknattleik ytra. Rétt eins og í jafnteflinu í gær, var spennan mikil í leiknum í dag en það var íslenska liðið sem hafði nauman sigur að þessu sinni 30-29.

Þegar mínúta var eftir af leiknum var staðan jöfn 29-29 og Þjóðverjar með boltann. Þeir áttu skot í stöng og íslenska liðið fékk tækifæri til að tryggja sér sigurinn. Það hafðist þegar Róbert Gunnarsson skoraði af línunni eftir að hafa náð frákasti og tryggði sigurinn innan við hálfri mínútu fyrir leikslok.

Þar með er ljóst að íslenska liðið náði jafntefli og sigri í tveimur leikjum gegn sterkum Þjóðverjum um helgina og verður það að teljast prýðilegur árangur þó bæði lið hafi reyndar verið án nokkurra fastamanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×