Handbolti

Naumt tap fyrir Dönum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik með íslenska landsliðinu.
Úr leik með íslenska landsliðinu.
Ísland tapaði í dag fyrir Danmörku, 23-22, í lokaleik sínum á æfingamótinu í Noregi.

Staðan í hálfleik var 10-7 fyrir Dani sem komust svo í 20-15 forystu þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. En þá tók íslenska liðið til sinna ráða og náði að minnka muninn í eitt mark þegar rúm mínúta var eftir. Ísland fékk svo tækifæri til að jafna metin en tókst það ekki.

Hanna G. Stefánsdóttir var markahæst í liði Íslands með fimm mörk og Ágústa Edda Björnsdóttir kom næst með fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×