Enski boltinn

Wenger: Nokkur lið sem við viljum sleppa við

NordcPhotos/GettyImages

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, viðurkennir að nokkrir af mögulegum mótherjum Arsenal í forkeppni Meistaradeildarinnar séu lið sem hann væri alveg til í að sleppa við að mæta.

Arsenal, líkt og Liverpool, þarf að mæta liði heima og heiman í þriðju umferðinni og hafa betur til að komast í riðlakeppnina.

Af mögulegum andstæðingum Arsenal má nefna lið eins og Atletico Madrid og Galatasaray.

"Það eru nokkur lið í drættinum sem við værum alveg til í að sleppa við að mæta. Því er best að vera ekkert að skoða það heldur takast bara á við það lið sem við mætum," sagði Wenger á sjónvarpsstöð Arsenal.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×