Egyptar héldu jöfnu gegn Evrópumeisturunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. ágúst 2008 15:31 Hussein Zaki fær hér óblíðar mótttökur hjá dönsku varnarmönnunum. Nordic Photos / AFP
Það urðu afar athyglisverð úrslit í B-riðli í handbolta karla á Ólympíuleikunum í Peking er Danmörk og Egyptaland gerðu jafntefli, 23-23. Liðin leika með Íslandi í riðli. Danir voru með frumkvæðið lengst af í fyrri hálfleik og leiddu í hlénu með einu marki, 11-10. Danir héldu því áfram í þeim síðari og náðu mest þriggja marka forystu, í stöðunni 18-15. En Egyptar neituðu að játa sig sigraða og komust yfir þegar þrjár og hálf mínúta var til leiksloka, 21-20. Þeir héldu framkvæðinu eftir það en Lars Christiansen jafnaði metin, 23-23, þegar sextán sekúndur voru eftir. Egyptar héldu því í síðustu sóknina í leiknum og átti Hussein Zaky möguleika á að tryggja þeim sigur en skot hans var varið. Christiansen skoraði flest mörk Dana, sex talsins. Jesper Jensen skoraði fjögur og þeir Joachim Boldsen og Hans Lindberg þrjú hver. Kasper Hvidt varði átta skot í markinu. Markahæstur hjá Egyptum var Ahmed El Ahmar með átta mörk. Zaky skoraði fimm og Hassan Yousry fjögur. Mohamed Nakib átti stórleik í markinu og varði sautján skot. Í lokaleik A-riðils í dag vann Pólland sigur á Kína, 33-19. Mariusz Jurasik skoraði átta mörk fyrir Pólland. Pólland, Frakkland og Króatía sigruðu í sínum leikjum í dag í A-riðli og eru því með tvö stig hvert. Spánverjar eru án stiga eftir tapið fyrir Króötum í morgun, rétt eins og Brasilía og Kína. Það voru óvæntari úrslit í B-riðlinum. Þýskaland og Ísland eru á toppnum með tvö stig eftir sína sigra og Danmörk og Egyptaland koma næst með eitt stig hvort. Rússland og Suður-Kórea eru stigalaus. Næst verður keppt í handbolta karla á aðfaranótt þriðjudags og fram eftir hádegi. Þriðjudagurinn 12. ágúst: 01.00 Brasilía - Króatía (A-riðill) 02.45 Egyptaland - Rússland (B-riðill) 06.00 Kína - Frakkland (A-riðill) 07.45 Spánn - Pólland (A-riðill) 11.00 Suður-Kórea - Danmörk (B-riðill) 12.45 Ísland - Þýskaland (B-riðill)
Handbolti Tengdar fréttir Frábær sigur á Rússum - Myndir Íslenska handboltalandsliðið fékk óskabyrjun á Ólympíuleikunum í Peking með því að vinna sigur á Rússum, 33-31. 10. ágúst 2008 04:21 Króatía vann fyrstu viðureignina Króatía vann sigur á Spánverjum í fyrstu handboltaviðureign karla á Ólympíuleikunum í Peking, 31-29, eftir að hafa haft fimm marka forystu í hálfleik, 16-11. 10. ágúst 2008 03:32 Þjóðverjar í miklu basli með Suður-Kóreu Heimsmeistarar Þýskalands unnu í morgun fjögurra marka sigur á Suður-Kóreu, í B-riðli handboltakeppninnar á Ólympíuleikunum í Peking. 10. ágúst 2008 11:37 Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira
Frábær sigur á Rússum - Myndir Íslenska handboltalandsliðið fékk óskabyrjun á Ólympíuleikunum í Peking með því að vinna sigur á Rússum, 33-31. 10. ágúst 2008 04:21
Króatía vann fyrstu viðureignina Króatía vann sigur á Spánverjum í fyrstu handboltaviðureign karla á Ólympíuleikunum í Peking, 31-29, eftir að hafa haft fimm marka forystu í hálfleik, 16-11. 10. ágúst 2008 03:32
Þjóðverjar í miklu basli með Suður-Kóreu Heimsmeistarar Þýskalands unnu í morgun fjögurra marka sigur á Suður-Kóreu, í B-riðli handboltakeppninnar á Ólympíuleikunum í Peking. 10. ágúst 2008 11:37