Enski boltinn

Tveir mánuðir í Kenwyne Jones

Elvar Geir Magnússon skrifar
Kenwyne Jones.
Kenwyne Jones.

Sunderland vonast til að sóknarmaðurinn Kenwyne Jones muni snúa eftir eftir tvo mánuði. Hann gekkst undir aðgerð á hné eftir meiðsli sem hann hlaut í leik Trinidad & Tobago gegn Englandi í byrjun júní.

Í fyrstu var óttast að hann myndi missa af öllum fyrri hluta tímabilsins en ekki þurfti eins veigamikla aðgerð og búist var við í fyrstu. Kenwyne var lykilmaður hjá Sunderland á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×